Frú Kristín

Hver er Frú Kristín?


Frú Kristín er íslenskt barnaefni fyrir börn á málþroskaaldri.
Frítt og aðgengilegt á YouTube alls staðar í heiminum!

,,Ég er bara móðir sem fannst vanta meira af íslensku barnaefni“

Frú Kristín er karakter sem höfðar til yngstu barnanna. Frábrugðin hefðbundnu íslensku barnaefni og líkir meira eftir „facetime“ þar sem hún talar beint til barnanna og bíður eftir að börnin svari sér, börn og foreldrar eru því hvattir til að taka virkan þátt við áhorf.

Hugmyndin af Frú Kristín spratt upp þegar dóttir Kristínar vildi einungis horfa á enskt barnaefni á YouTube. Í þáttunum kennir Frú Kristín einföld orð og handahreyfingar eða látbragð. Hún fer í alls konar leiki og hvetur börnin til að taka þátt, bera fram orð og herma eftir sér. Auður Barnalög syngur og gerir tónlist við flest lög í þáttunum.

Hægt er að fá Frú Kristín & Auður Barnalög á viðburði eða skemmtanir hvort sem það eru barnaafmæli eða hátíðir á leikskólum. Frú Kristín spjallar við börnin og tekur lagið með Auði sem mætir með gítarinn!
Ef þú hefur áhuga hafðu samband á netfangið frukristin@frukristin.is

← Back

Your message has been sent